
Vinnuumhverfi
Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við notkun annaðhvort
í hefðbundinni stöðu við eyrað eða þegar það er haft að minnsta kosti 2,2 sentímetrar
(7/8 tomma) frá líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er notað þegar tækið er
borið á réttan hátt á líkamanum ætti slíkur búnaður ekki að innihalda málm og halda
ætti tækinu að minnsta kosti í þeirri fjarlægð frá líkamanum sem nefnd var hér á undan.
Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf þetta tæki góða tengingu við
símkerfið. Í sumum tilvikum getur sending gagna eða boða tafist þar til slík tenging er
tiltæk. Tryggja skal að ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt þar til sendingu er
lokið.
Viðbótaröryggisupplýsingar
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
30

Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist að tækinu. Ekki má geyma
kreditkort eða aðra segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt tækinu því
upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.