
Flýtiritun
Í flýtiritun er notuð innbyggð orðabók sem hægt er að bæta nýjum orðum inn í.
1. Byrjaðu að skrifa orð með tökkunum 2 til 9. Ýttu aðeins einu sinni á hvern takka fyrir
hvern staf.
2. Til að staðfesta orð með því að bæta inn bili ýtirðu á 0.
● Ef orðið er ekki rétt skaltu ýta endurtekið á * og velja orðið af listanum.
● Ef greinarmerkið ? birtist aftan við orðið er orðið sem þú vilt slá inn ekki að finna
í orðabókinni. Veldu Stafa til að bæta orðinu inn í orðabókina. Sláðu inn orðið á
venjulegan hátt og veldu Vista.
● Samsett orð eru slegin inn með því að slá fyrst inn fyrri hluta orðsins og fletta svo
til hægri til að staðfesta hann. Svo slærðu inn síðari hluta orðsins og staðfestir
það.
3. Byrjaðu að skrifa næsta orð.
5. Notkun valmyndarinnar
Símaaðgerðirnar eru flokkaðar í valmyndir. Ekki er öllum aðgerðum eða valkostum lýst
hér.
Í biðstöðu velurðu Valmynd og síðan viðkomandi valmynd og undirvalmynd. Veldu
Hætta eða Til baka til að fara út úr valmynd. Styddu á hætta-takkann til að fara beint
í biðstöðu. Til að breyta útliti valmyndarinnar velurðu Valmynd > Valkostir >
Aðalskjár valmynd..
6. Skilaboð
Hægt er að skrifa, senda og vista textaskilaboð, margmiðlunarskilaboð, hljóð- og
leifturboð og tölvupóstskeyti. Aðeins er hægt að nota skilaboðaþjónustuna ef símkerfið
eða þjónustuveitan styðja hana.
Texta- og margmiðlunarskilaboð
Hægt er að búa til skilaboð og hengja hluti, líkt og myndir, við þau. Síminn breytir
textaskilaboðum sjálfkrafa í myndskilaboð þegar skrá er hengd við skilaboðin.
Textaskilaboð
Tækið styður textaskilaboð sem fara yfir takmörkin fyrir ein skilaboð. Lengri skilaboð
eru send sem tvö eða fleiri skilaboð. Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í samræmi
við það. Stafir sem nota kommur eða önnur tákn ásamt stöfum sumra tungumála, taka