
Loftnet
Í tækinu kunna að vera innri og ytri loftnet. Líkt og gildir um öll önnur tæki
sem senda eða taka við útvarpsbylgjum ætti að forðast að snerta loftnetið
að óþörfu við móttöku eða sendingu útvarpsbylgna. Snerting við slíkt
loftnet hefur áhrif á sendigæði og getur valdið því að tækið noti meiri orku
en annars er nauðsynlegt og getur minnkað líftíma rafhlöðu þess.
Myndin sýnir loftnetssvæðið merkt með gráu.