Nokia 5000 - Músíkspilari

background image

Músíkspilari

Síminn þinn inniheldur músíkspilara til að hlusta á tónskeið eða aðrar MP3 eða AAC

hljóðskrár. Hljóðskrár sem eru vistaðar í Gallerí > Tónlistarskrár eða Upptökur

finnast sjálfkrafa.

Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með hæfilegum hljóðstyrk. Stöðug áraun af háum

hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn

er notaður því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.
Veldu Valmynd > Miðlar > Tónlistarspilari.
Til að hefja spilun eða gera hlé á henni ýtirðu á valtakkann í miðjunni.
Til að fara á byrjun lags sem er í spilun er flett til vinstri.
Til að fara í lagið á undan ýtirðu tvisvar á vinstri flettitakkann.
Til að fara í næsta lag flettirðu til hægri.
Til að spóla til baka ýtirðu á vinstri flettitakkann og heldur honum niðri.
Til að spóla áfram ýtirðu á hægri flettitakkann og heldur honum niðri.
Til að stilla hljóðstyrkinn við spilun flettirðu upp og niður.
Kveikt og slökkt er á spilaranum með því að ýta á #.
Til að láta tónlist spila í bakgrunni ýtirðu á hætta-takkann. Spilarinn er stöðvaður með

því að halda inni hætta-takkanum.

13. Forrit

Í hugbúnaði símans kunna að vera nokkrir leikir og Java-forrit sem eru sérstaklega

hönnuð fyrir Nokia-símann.
Veldu Valmynd > Forrit.
Veldu Leikir eða Safn til að opna leik eða forrit. Flettu að leik eða forriti og veldu

Opna.
Til að skoða hve mikið minni er tiltækt fyrir uppsetningu nýrra leikja og forrita velurðu

Valkostir > Staða minnis.
Veldu Valkostir > Hlaða niður > Hlaða niður leikjum eða Hlaða niður forritum til

að hlaða niður leik eða forriti. Síminn styður J2ME™ Java-forrit. Gakktu úr skugga um að

forritið sé samhæft símanum áður en því er hlaðið niður.

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og annan hugbúnað frá

áreiðanlegum aðilum, s.s. forrit sem eru Symbian Signed eða hafa staðist Java

Verified

TM

prófun.

Hægt er að vista sótt forrit í Gallerí í stað Forrit.